Góða kvöldið gott fólk nú skulið þið kvítta fyrir komu ykkar á bullið mitt
Árni minn átti afmæli 11 ágúst og er búinn að ná mér hahah 49 ára

og Bjössi átti svo afmæli 12 ágúst og er orðinn 21 árs þetta líður heldur betur áfram til hamingju með daginn ykkar sætu strákarnir mínir
Af okkur hjónum er bara allt gott að frétta, við erum búin að ferðast um þvert landið á litla bílnum okkar og höfðum með okkur tjaldið og allan útilegubúnað í þetta sinn með okkur

við fórum til Akureyrar og tjölduðum undir Hömrunum í rjóma-logni sem virðist alltaf vera á Akureyri þegar við komum þangað, við vorum eina nótt þarna og fórum svo og skoðuðum okkur um í bænum þarna var skemmtiferðaskip mjög stórt prinsessa eitthvað, ég man ekki nafnið á því..
Við rendum okkur svo til Húsavíkur á Mærudaga, enn hvað bærinn var fallega skreittur hjá þeim og ég tók nokkrar myndir af hinu og þessu skrauti, svo voru þarna mjög margar skútur og allra handanna seglskútur um allar bryggjur og fjörðinn svo svakalega gaman að hafa komið þarna við og séð þetta allt saman sem var þarna um að vera

síðan lögðum við af stað út á Mánarbakka og skoðuðum safnið þar og þegar við vorum þarna síðast var bara eitt gamalt gult hús en núna er búið að byggja svo fallegan gamlan torfbæ sem er einnig sýningar hús um gamla tíman.
Við héldum áfram í átt að Kelduhverfi og ég ætlaði að koma við á einum sveitabæ þar (Undirvegg) ef hann frændi væri þar, og þar var Siggi frændi (bróðir hennar móðir minnar)að ditta að gömlu húsi og Silla að gera lummur og bauð okkur í kaffi, allveg yndislegt að koma þarna í sveitina henna Sillu svo skemmtilegt fólk og ástar þakkir fyrir okkur
Við héldum ferð okkar áfram og fórum niðurgrafna torffeldaleið upp að Dettifossi sem var eigilega lokuð, en við röltum okkur að fossinum allveg öfugumegin að mínu mat, þarna var verið að taka upp mynd og þyrla flaug yfir svæðið, sem sagt það mátti ekki heldur mynda neitt og þarna við stóðu verðir - Björgunarsveitarmenn, já svona er nú litla Ísland okkar en við fengum að gjöf dvd mynd um fossinn og umhverfið í kring hehehe snilld smá sárabót !!! Við fórum svo að Mývatni og skoðuðum allt þar í kring, þar vann hún Ásdís okkar eitt sumarið á Hótel Mývatni og líkaði vel

við fundum þarna svo lítið sumarhús við veginn sem var auglýst pizza til sölu og fengu okkur pizzu þar inni jammi

við vorum orðinn svolítið svöng eftir þetta ferðalag

Næst héldum við áfram og komum niður í Reykjadal og þar myndaði ég Laugar sem hún Ásdís okkar var í skóla í nokkur ár, svo fallegt allt þarna og mikill gróður

síðan fórum við í Kjarnaskóg og tjölduðum og orðin frekar lúin

líka búin að vera lengi á ferðalagi í yndislegu góðu veðri

Daginn eftir var svo brunað áleiðis til Hólmavíkur og ætluðum við að koma við hjá Steina og fjölsk sem stödd var á Hvammstanga á ættarmóti hennar Svölu, þar var sko bong og blíða og litlu ömmu og afa börnin tóku á móti okkur með faðmi bara yndisleg krútt

Síðan héldum við leið okkar áfram Strandirnar til Hólmavíkur í Skeljavíkina og þar var skillti sem á stóð ....SKJÓLBREKKA.... þarna var hún Ásdís okkar Jónsd komin með heitið á litla sumarhúsinu okkar takk æðislega fyrir þetta, svo fallegt og vel gert

Árni hengdi skiltið svo upp og það kemur bara vel út

við vorum þarna svo sem eftir var af okkar litla helgarfríi, fórum í golf og að veiða ég veiddi silung framm í Vatnshorni bara vænn fiskur, sem ég svo grillaði og við borðuðum sem forrétt af bestu lyst

Síðan var lagt í hann suður á við á mánudeginum ég átti að fara á kvöldvakt og var kominn rétt fyrir þann tímann

*******************************************************
Um helgina eftir þessa fórum við svo heim í Skjólbrekkuna okkar og höfðum það svo sannarlega kósý, það er svo æðislegt að vera þarna í ró og næði og láta líða úr sér þreytuna og safna krafti fyrir komandi vetri, það var spegillsléttur fjörðurinn vá kyrrðin var ótrúleg.... við fórum út um kvöldið og rölltum upp í kirkjugarð og krossuðum yfir okkar frændfólk og vini

Daginn eftir buðum við Sillu okkar með norður á Eyri í Ingólfsfjörð, þar tók krían á móti okkur með kjafti og klóm og hálf rak okkur í burtu heheh nei nei ekki svo slæmt......en hvað sveitin er falleg þarna og stórbrotin, við síðan fórum við á hnallþóruhlaðborð í Djúpuvík og takk fyrir okkur kæra Silla vinkona allveg frábær ferð og mjög góður vegurinn norður í Árneshrepp

)
Svona á að hafa þetta þegar maður er í góðu helgarfríi heheheh

segja bæ og bruna bara af stað út í buskan og finna sér laut og tjalda og fl, og hafa það svo huggulegt ég hefði haldið það hahaha

jæja ég kem seinna og bulla meira um ferðir okkar í sumar góða sumarrest elskurnar mínar... knús og kossar kveðja Kristín St